Allt sem þarf

til að allir sjái.

LED SKJÁIR

STÝRINGAR

SALA OG LEIGA

LED SKJÁIR ✦ STÝRINGAR ✦ SALA OG LEIGA ✦


  • ÚTISKJÁIR

  • INNISKJÁIR

  • AFSPILUNARLAUSNIR

  • STREYMISLAUSNIR

  • STÝRINGAR

Hvort sem þig vantar risa led skjá fyrir árshátíðarmyndbandið, upplýsingaskilti við vegalokun eða heilt skjákerfi fyrir stóran íþróttabar - þá getum við græjað það. Við flytjum inn LED skjái frá bestu framleiðendunum, græjum myndavélar, afspilunartæki og annan búnað, og smíðum okkar eigin stýringar sem stjórna öllu saman.

Við komum úr sjónvarps- og kvikmyndageiranum, og notumst því við lausnir sem helstu sjónvarpsstöðvar heims treysta - græjur sem hannaðar eru fyrir 100% uppitíma og mikla notkun.

Við leigjum út tæki og tól í einstaka verkefni - en bjóðum líka upp á ráðgjöf, sölu og uppsetningu. Við vitum líka að eftir að reikningurinn er gefinn út er verkið ekki búið. Þessvegna bjóðum við þjónustusamninga sem henta þér - og fyrsta árið er frítt.


ennþá spurningar? sendu okkur línu.